Web Analytics
Eignarhaldsfélagið Fasteign
       
    Forsíða  
Fasteignir
Þjónustuborð
    Aðstöðustjórnun  
    Helstur verkefni  
    Ávinningur  
    Um félagið  
    Starfsfólk  
    Staðsetning  
    Tenglar  
    Fréttir  


Aðstöðustjórnun, hvað er það?

Með aðstöðustjórnun er átt við skipulagningu og þjónustu allra verkferla sem nauðsynlegir eru fyrirtækjum og stofnunum þannig að þau/þær geti einbeitt sér að kjarnastarfsemi sinni. EFF býður því upp á víðtækari þjónustu í tengslum við aðstöðustjórnun. Þessi þjónusta er byggð upp af innanhúsviðhaldi, öryggis-, bruna- og lagnaeftirliti, orkuvöktun og hitaþægindakönnun.

Magnús lagabætir og aðstöðustjórnun

Magnús lagabætir er þekktur á Íslandi fyrir að hafa látið semja Jónsbók. Hann lét taka til sín víða því hann setti lög í Noregi sem voru á þá leið að allir bændur verði að tjara þak kirkna sinna þriðja hvern vetur. Má telja þetta frumkvöðlastarf á sviði aðstöðustjórnunar því að lögin skilgreina hver er ábyrgur fyrir framkvæmdinni, hversu oft skal framkvæma og hvenær skal framkvæma, nákvæmlega eins og nútíma aðstöðustjórnunarfræði.

 


 
  ÚR EIGNASAFNI  
  Íþróttamiðstöð Njarðvíkur  
  Barnaskóli Vestmannaeyja  
  Sundlaug Vogum  
  Leikskólinn Tjarnarsel  
 

 

Hefur þú áhuga á samstarfi við Fasteign?

Verktakar og iðnaðarmenn sem hafa áhuga á að gerast samstarfsaðilar EFF eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við okkur í síma 414 6400 eða í eff(hjá)eff.is
EFF sækist eftir samstarfi við iðnaðarmenn, verkfræðinga, tæknifræðinga, byggingavektaka, vinnuvélaverktaka og hönnuði á þeim stöðum þar sem Fasteign á eignir.

Sæktu upplýsingar um aðstöðustjórnun:

PowerPoint skjal                PDF skjal

Hvað getur EFF gert fyrir þig?


Tryggt að öryggismálin séu ávallt í lagi.  
Tryggt að loftræsti- og hitakerfi virki til
þæginda fyrir starfsmenn fyrirtækisins.
Komið í veg fyrir orkusóun.
Gert tillögur um forgangsröðun að fjármagni fyrir
innan- og utanhússviðhald.
Unnið árlega fasteigna-stjórnunaráætlun .
Séð um tilboð og stýringu á þjónustuaðilum.
Komið á öflugu gæðakerfi - allt opið og gegnsætt.
Og margt fleira.

Lærdómsferli er innifalið í verklagi okkar
Verkkaupi fær strax ávinning af vinnu okkar.

Hafðu samband við okkur í síma 414 6400 eða í eff(hjá)eff.is
 
 
Heim Hafa samband Íslenska English              Eignarhaldsfélagið Fasteign hf, Kt. 601202-3280, Bíldshöfða 9, 110 Reykjavík,sími: 414-6400, Fax 414 6401, eff(hja)eff..is, Vefhönnun: emstrur