Web Analytics
Eignarhaldsfélagið Fasteign
       
    Forsíða  
Fasteignir
Þjónustuborð
    Aðstöðustjórnun  
    Helstur verkefni  
    Ávinningur  
    Um félagið  
    Starfsfólk  
    Staðsetning  
    Tenglar  
    Fréttir  


Nýir tímar, ný viðhorf og nýir möguleikar

Við vitum að íslenskt samfélag hefur tekið stórfelldum breytingum á liðnum árum. Sveitarstjórnarmenn búa við starfsumhverfi sem er gjörólíkt því sem áður var. Íbúar og fyrirtæki krefjast sífellt fjölbreyttari og betri þjónustu svo framkvæmdaþörfin er mikil. Með eignaraðild og samstarfi við EFF gefst sveitarstjórnum kostur á að byggja upp hraðar en annars væri mögulegt og jafna framkvæmdakostnað á lengri tíma. Þannig geta sveitarfélög ráðist í nauðsynlega uppbyggingu án þess að fjárfrekar framkvæmdir skerði möguleika þeirra til að sinna öðrum brýnum verkefnum og stuðlað að traustari afkomu sveitarfélags og betri þjónustu við íbúana.

Öflugur og traustur samstarfsaðili

Eignarhaldsfélagið Fasteign hf. hefur rutt brautina á sviði byggingarframkvæmda og eignaumsýslu fyrir sveitarfélög og aðra opinbera aðila. Sveitarfélög leggja fasteignir sínar til félagsins, gerast þannig meðeigendur í félaginu og koma með virkum hætti að starfsemi þess og framtíðaráformum. Á síðustu árum hefur sveitarfélögum, sem eignast hlut í félaginu, fjölgað hratt því að sífellt fleiri sveitarstjórnarmenn hafa sannfærst um hversu hagkvæmt það er að byggja upp í samstarfi við og sem meðeigendur í EFF.

 
  ÚR EIGNASAFNI  
  Íþróttamiðstöð Njarðvíkur  
  Skóli og stjórnsýsluhús Grímsnesi  
  Barnaskóli Vestmannaeyja  
  Skolpdælustöð Reykjanesbæ  
  Glitnir Kirkjusandi  
Sandgerðisskóli

Gísli Kjartansson f.v. sparisjóðsstjóri
Sparisjóðs Mýrasýslu

Gísli KjartanssonVið erum ekki í nokkrum vafa um að Sparisjóði Mýrasýslu var mikill hagur í því að ganga til samstarfs við Fasteign hf. um að eignarhaldsfélagið tæki að sér að reisa afgreiðslu- og skrifstofuhúsnæði fyrir sparisjóðinn og sjá um rekstur og viðhald á húsinu. Fasteign hf. hefur á að skipa sérfræðingum á sínu sviði og verkskipting hefur gefið okkur hjá sparisjóðnum betri tíma til að sinna því sem við erum sérfræðingar í.

Hvernig er hægt að gerast aðili
að Fasteign?

Þeir sem hafa gerst aðilar að Fasteign hafa ekki einungis gerst leigutakar heldur einnig eigendur.  Með þessu móti hafa þeir áhrif á stefnu félagsins í gegnum eignaraðild sína og vita einnig að ávallt sitja í stjórn félagsins aðilar með sömu hagsmuni og þeir hafa.
Þegar nýir aðilar ákveða að gerast félagar í Fasteign gerist það með tvennum hætti. Annað hvort setja þeir eldri eignir sínar inn í félagið eða  óska eftir því að Fasteign reisi fyrir þá nýja byggingu. 

Nýbyggingar

Þegar um nýbyggingu er að ræða gerir Fasteign kostnaðaráætlun þegar hönnun er kominn nægilega langt til að slíkt sé mögulegt.  Þegar kostnaðaráætlun liggur fyrir eru gerð drög að leigusamningi sem byggja á þessari kostnaðaráætlun en mánaðar leiguverð er 0,685% af heildarfjárfestingu vegna byggingarinnar, þ.e. heildar byggingarkostnaðar og lóðarkostnaðar.  Þegar um nýbyggingu er að ræða setur sá sem um ræðir þá lóð sem ætluð er undir byggingu inn í félagið og fær greitt fyrir lóðina í hlutafé í Fasteign. Algengt er að verðmæti lóðar sé um 15% af heildarfjárfestingu þeirrar byggingu sem reisa skal. 

Eldri byggingar

Ef hins vegar er um það að ræða að einhver vilji gerast aðili að Fasteign með því að setja eldri eignir inn í félagið eru eignirnar metnar af til þessum bærum aðilum og endanlegt verð svo fundið út í sameiningu.  Þegar kaupverð hefur verið ákveðið, greiðir Fasteign 85% af kaupverði með peningum og 15% með hlutafé og þannig gerist hinn nýi aðili hluthafi í Fasteign.

Jóhanna Reynisdóttir f.v. sveitarstjóri í
Vogum

Jóhanna ReynisdóttirEftir að hafa kynnst vinnubrögðum og þjónustu Fasteignar hf. er ég ekki í nokkrum vafa um að samvinna við Fasteign er fjárhagslega hagkvæm leið fyrir sveitarfélagið.  Ég get hiklaust mælt með því við sveitarstjórnarmenn að þeir íhugi kostina sem bjóðast hjá Fasteign hf. þegar kemur að uppbyggingu í þágu íbúanna.

Guðmundur Bjarnason f.v. bæjarstjóri í
Fjarðabyggð

Guðmundur BjarnasonÉg er sannfærður um að þessi leið við fjármögnun framkvæmda á vegum sveitarfélaga er góður kostur í bland við fjárfestingar í eigu sveitarfélagsins.  Stærð félagsins, sérþekking og áratuga reynsla af verklegum framkvæmdum styttir byggingartíma og lækkar byggingarkostnað.  Viðhald á fasteignum verður reglulegra og þetta tryggir lengri notkunartíma.

Margrét Sigurðardóttir f.v. sveitarstjóri í
Grímsnes- og Grafningshreppi

Grímsnes- og Grafningshreppur tók ákvörðun um það árið 2004 að fá Eignarhaldsfélagið Fasteign hf. til að fjármagna og sjá um byggingu skóla og stjórnsýsluhúss og svo síðar sundlaugar og íþróttahúss á Borg.   Öll viðskipti mín við stjórnendur og starfsmenn Fasteignar hf. hafa verið mjög góð.  Hlutirnir gerast hratt og örugglega.

Ásdís Halla Bragadóttir f.v. bæjarstjóri í
Garðabæ

Ég er ekki í nokkrum vafa um að sveitarfélög geta haft mikinn hag af þessari tilhögun við uppbyggingu og rekstur fasteigna enda tryggir sérhæfing öflugrar liðsheildar hjá Fasteign að farnar eru hagkvæmustu og bestu leiðir hverju sinni.  Fasteign hf. tók að sér að reisa Sjálandsskóla, skilaði af sér verkinu bæði fljótt og vel og byggingarkostnaður var talsvert undir þeim áætlunum sem Garðabær hafði gert.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í
Garðabæ

Árni SigfússonEFF er skynsamleg leið fyrir sveitarfélögin, því að reynsla og þekking á því að byggja og viðhalda sambærilegum byggingum er að skila mun lægri byggingarkostnaði. Með jöfnu viðhaldi er tryggt að eignirnar séu alltaf í góðu ásigkomulagi.

Árni Sigfússon bæjarstjóri í
Reykjanesbæ

Árni SigfússonÞegar sveitarfélögum var öllum gert að stofna "eignarsjóði" og krefja viðkomandi stofnanir um leigu, fundum við hjá Reykjanesbæ farsælli leið.  Við stofnuðum með öðrum sveitarfélögum og fjármálastofnunum Eignarhaldsfélagið Fasteign hf.  Þetta hefur reynst farsæl lausn; vaxtakjör og þar með leigukjör eru mjög hagstæð, verktími stenst betur vegna sérþekkingar í stóru félagi og viðhald er ekki afgangsstærð eins og oft vill verða hjá opinberum aðilum.

Helga Jónsdóttir, bæjarstýra
Fjarðarbyggð

Árni SigfússonEignarhaldsfélagið Fasteign hefur veitt faglega ráðgjöf og reynst afar lipurt í samskiptum. Félagið sýnir sanngirni á erfiðum tímum m.a. fá sveitarfélögin leigugreiðslur lækkaðar. Þrjátíu árum frá leigusamningi verður EFF búið að greiða viðkomandi eign upp og sveitarfélagið mun þá eiga virði hennar að fullu sem eigandi í EFF.

Jón G. Valgeirsson Sveitarstjóri
Grímsnes- og Grafningshreppi

Árni SigfússonSamstarfið við EFF varðandi uppbyggingu skóla- og íþróttamannvirkja hefur auðveldað litlu sveitarfélagi bráðnauðsynlega uppbyggingu slíkra mannvirkja og fjármögnun þeirra en við leggjum mikla áherslu á að viðkomandi mannvirki verði síðan eign sveitarfélaganna að leigutíma loknum.

Sigurður Valur Ásbjarnarson, bæjarstjóri
Sandgerðisbæjar

Árni SigfússonReynsla okkar af aðild að EFF og byggingarframkvæmdum í þágu sveitarfélagsins er góð. Stuttar boðleiðir og trygg þjónusta við eigendur sína er til fyrirmyndar. Byggingarkostnaður hefur reynst lægri hjá EFF í samanburði við sambærileg verkefni hjá öðrum sveitarfélögum. Félagið „okkar“ byggir þjónustustofnanir fyrir íbúa á hagkvæman hátt og af kostgæfni. Þjónustuhlutverk og hagkvæmni í viðhaldi og byggingu er höfð að leiðarljósi. Þátttaka Sandgerðisbæjar byggist á þeirri forsendu að við lok leigutíma hafi allur kostnaður af viðkomandi fasteignum verið greiddur upp og til verði hrein eign í vel reknu félagi.

Sigurður Magnússon fyrrverandi bæjarstjóri
Álftaness

Árni SigfússonÞegar bæjarstjórn Álftaness ákvað að gerast eignaraðili að EEF við byggingu nýrra sundlaugar- og íþróttamannvirkja, var ákvörðunin m.a. studd faglegu mati ráðgjafafyrirtækis. Leiguleið var talin hagkvæmari en að sveitarfélagið byggði sjálft og skipti sköpum í því sambandi eignaraðild að EEF. Eins mátum við sem kost að í samningum um framkvæmdina var hægt að semja um að EEF ábyrgðist að kostnaðaráætlun stæði en tilhneiging er til að framkvæmdir sem þessar fari fram úr áætlunum.

Þorkell Sigurlaugsson framkvæmdastjóri hjá
Háskólanum í Reykjavík

Árni SigfússonFyrir Háskólann í Reykjavík var mikilvægt að geta fengið reynslumikið fyrirtæki í samstarf með okkur í byggingu nýrrar háskólabyggingar. Sú hugmyndafræði um eignarhald og rekstur sem EFF byggðist á var hagstæð. Auk þess þurftum við að hafa samstarfsaðila með okkur sem gæti tryggt sem lægstan byggingarkostnað og fjármögnun verkefnisins.

Bergur Elías Ágústsson bæjarstjóri
Norðurþings

Árni SigfússonEignarhaldsfélagið Fasteign hf. er frábært samvinnufélag sem hefur þróast og þroskast fram á þennan dag. Reynslan af félaginu hefur hingað til verið mjög góð. Þetta leigufyrirkomulag, sem gefur kost á eignaraðild, hefur reynst heillavænlegt fyrir sveitarfélagið ekki síst á þeim umrótatímum sem nú ganga yfir íslenskt samfélag.

Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
Fljótsdalshéraðs

Árni SigfússonÞví hefur verið ranglega haldið fram að með því að EFF eigi fasteignirnar, séu sveitarfélögin ekki eigendur. Sveitarfélögin eru eigendur að EFF og þannig eiga þau eignirnar og stjórna þeim áfram í þágu sveitarfélaganna.

 
 
Heim Hafa samband Íslenska English              Eignarhaldsfélagið Fasteign hf, Kt. 601202-3280, Bíldshöfða 9, 110 Reykjavík,sími: 414-6400, Fax 414 6401, eff(hja)eff..is, Vefhönnun: emstrur