Web Analytics
Eignarhaldsfélagið Fasteign
       
    Forsíða  
Fasteignir
Þjónustuborð
    Aðstöðustjórnun  
     
    Ávinningur  
    Um félagið  
    Starfsfólk  
    Staðsetning  
    Tenglar  
    Fréttir  


VELKOMIN Á HEIMASÍÐU EFF


Eignarhaldsfélagið Fasteign (EFF) var stofnað þann 20. desember 2002 af nokkrum sveitarfélögum og fjármálastofnun. Félagið byggir á þeirri hugmyndafræði að mikil hagkvæmni liggi í samstarfi milli opinberra aðila og einkaaðila um samfélagsverkefni eða PPP (public private partnership).

Markmið EFF er að skila virðisauka fyrir samstarfsaðila sína og eigendur:

Gildi EFF eru traust, heiðarleiki, fagmennska og jafnræði

Hluthafar í EFF eru opinberir aðilar, skólar og fjármálastofnanir. Hluthafar hafa ýmist lagt eldri fasteignir sínar inn í EFF sem hlutafé eða keypt hluti. Leigutakar eru allir hluthafar í félaginu. EFF hefur byggt töluvert af nýjum fasteignum fyrir eigendur sína og leigutaka auk þess að halda þeim við. Með því að afmarka verkefni sem Fasteign tekur að sér, býr félagið við nánast enga markaðsáhættu. EFF er þegar í samstarfi við fjölmörg sveitarfélög og fjármálastofnanir. Þau eru: Álftanes, Fjarðarbyggð, Fljótsdalshérað, Garðabær, Grímsnes-og Grafnigshreppur, Norðurþing, Reykjanesbær, Sandgerði, Vestmannaeyjar, Sveitarfélagið Vogar, Sveitarfélagið Ölfus, Borgun, Glitnir, Kreditkort , Sparisjóður Siglufjarðar, og Sparisjóður Mýrasýslu.

 
  ÚR EIGNASAFNI  
  Íþróttamiðstöð Njarðvíkur  
  Skóli og stjórnsýsluhús Grímsnesi  
  Barnaskóli Vestmannaeyja  
  Skolpdælustöð Reykjanesbæ  
  Glitnir Kirkjusandi  
Glitnir Háaleitisbraut
LESA FRÉTT
Ný sundlaug opnar á Álftanesi 13.7.2009 07:39:53
Þann 23. maí 2009 var opnuð ný sundlaug og heilsurækt á Álftanesi. Í íþróttamannvirkinu er vatnsrennibraut og sérstök öldulaug, sem er sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Hefur öldulaugin notið fádæma vinsælda það sem af er, bæði af bæjarbúum og aðkomufólki.
Byggingin er 2.600m2 að stærð og er tengd íþróttahúsinu. Arkitektar eru ark teiknistofan, verkfræðihönnun og hönnunarstjórn var á höndum Verkís hf.
Fyrir utan 25 metra laug eru vaðlaug, rennibraut, öldulaug, 12,5 metra innilaug, heitir pottar, gufubað og líkaamsrækt.


 
 
             Eignarhaldsfélagið Fasteign hf, Kt. 601202-3280, Bíldshöfða 9, 110 Reykjavík,sími: 414-6400, Fax 414 6401, eff(hja)eff..is, Vefhönnun: emstrur

 

Heim Hafa samband Íslenska English