|
VELKOMIN Á HEIMASÍÐU EFF
Eignarhaldsfélagið Fasteign (EFF) var stofnað þann 20. desember 2002 af nokkrum sveitarfélögum og fjármálastofnun. Félagið byggir á þeirri hugmyndafræði að mikil hagkvæmni liggi í samstarfi milli opinberra aðila og einkaaðila um samfélagsverkefni eða PPP (public private partnership).
Markmið EFF er að skila virðisauka fyrir samstarfsaðila sína og eigendur:
Gildi EFF eru traust, heiðarleiki, fagmennska og jafnræði
Hluthafar í EFF eru opinberir aðilar, skólar og fjármálastofnanir. Hluthafar hafa ýmist lagt eldri fasteignir sínar inn í EFF sem hlutafé eða keypt hluti. Leigutakar eru allir hluthafar í félaginu. EFF hefur byggt töluvert af nýjum fasteignum fyrir eigendur sína og leigutaka auk þess að halda þeim við. Með því að afmarka verkefni sem Fasteign tekur að sér, býr félagið við nánast enga markaðsáhættu. EFF er þegar í samstarfi við fjölmörg sveitarfélög og fjármálastofnanir. Þau eru: Álftanes, Fjarðarbyggð, Fljótsdalshérað, Garðabær, Grímsnes-og Grafnigshreppur, Norðurþing, Reykjanesbær, Sandgerði, Vestmannaeyjar, Sveitarfélagið Vogar, Sveitarfélagið Ölfus, Borgun, Glitnir, Kreditkort , Sparisjóður Siglufjarðar, og Sparisjóður Mýrasýslu. |
|
|
LESA FRÉTT
| Háskólinn í Reykjavík flytur í nýbyggingu |
14.1.2010 11:37:26 |
Þann 11. janúar s.l. flutti Háskólinn í Reykjavík í nýbyggingu við Nauthólsvík. Til þess að vekja athygli á þessum breytingum söfnuðust kennarar og nemendur skólans saman við Ofanleiti og gengu að nýbyggingu skólans við Nauthólsvík. Vakti gangan verðskuldaða athygli enda mikil tímamót í sögu skólans þar sem allar deildir eru á leið undir sama þak. Við komuna í skólann fluttu þau Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri, Svafa Grönfeldt, rektor HR, Ari Kristinn Jónsson, verðandi rektor HR og Sunna Magnúsdóttir, formaður Stúdentafélags HR, stutt ávörp. Kennsla hófst síðan samkvæmt stundaskrá um klukkan 11:00 og má þá segja að byggingin hafi formlega verið gangsett sem háskóli. Það eru 2.300 nemendur og 200 kennarar sem hefja starfsemina með þessum hætti en 3.000 nemendur eru skráðir í skólann. Sá hluti sem núna er tekinn í notkun er 23.000 fermetrar og á næstu mánuðum verður lokið við byggingu 7.000 fermetra álmu. Glæsileg bygging með skemmtilegri aðstöðu fyrir nemendur og kennara, enda sérhönnuð fyrir skólann. Eins og aðrir í samfélaginu hafa EFF og HR þurft að taka mið af breyttu efnahagsástandi. Af þeim sökum var ákveðið að fresta byggingu tveggja álma við skólann, en upphaflega átti skólinn að vera 37.000 fermetrar.
Í Háskólanum í Reykjavík eru fimm deildir, tækni- og verkfræðideild, tölvunarfræðideild, viðskiptadeild, lagadeild og kennslufræði- og lýðheilsudeild. Fyrstu þrjár eru þegar fluttar inn en tvær hinar síðastnefndu flytja inn í sumar.
|
| |