Hjá okkur starfar reynslumikið fólk
Hjá EFF starfar fólk með langa og víðtæka reynslu á sviði rekstrar og alls er varðar framkvæmdir og þróun fasteigna. Við erum til húsa að Bíldshöfða 9, 7. hæð, Reykjavík og síminn er 414 6400.
Hafðu samband við starfsfólk okkar
Meðan á framkvæmdum stendur þarf iðulega að hafa samband við EFF um ýmislegt er varðar framkvæmdina sjálfa. Þá viljum við benda viðskiptavinum okkar á neðangreinda starfsmenn og starfsvið þeirra. Verkefni okkar er að láta hlutina ganga upp og því er nauðsynlegt að hafa samband ef eitthvað bjátar á. Ef þú ert ekki aðili að EFF en hefur áhuga á að skoða möguleika á samstarfi viljum við hvetja þig til að hafa samband. Hver einasti starfsmaður er tilbúinn að leiðbeina þér um flest það sem varðar samstarf við EFF. |