![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Einn helsti ávinningur samstarfs við EFF er að félagið leggur mikinn metnað í viðhald á eignum félagsins. EFF vill að eignirnar séu í toppstandi til þess að þær megi sem best sinna því hlutverki sem þeim ætlað. Þar sem eignir félagsins eru dreifðar út um allt land er mikilvægt að hafa samband ef eignin krefst viðhalds. Allt viðhald, smátt og stórt skiptir okkur máli og hvetjum við leigutaka til að vera vakandi yfir hverju smáatriði. Við vinnum með heimamönnum Við stöndum að byggingarframkvæmdum, rekstri og viðhaldi fasteigna í náinni samvinnu við leigutaka og leitumst við að fá til framkvæmda verkefna framkvæmdaaðila og verktaka heima í héraði. Lögð er áhersla á að leigutakar hafi ævinlega greiðan aðgang að starfsmönnum EFF, sérfræðingum, ráðgjöfum og verktökum. Samvinna og náið samráð gerir okkur kleift að þjóna leigutökum okkar á sem hagkvæmastan hátt og leysa verkefni í fullri sátt við heimamenn og hagsmunaaðila. Ef þú ert iðnaðarmaður eða verktaki í sveitarfélagi þar sem EFF á eignir og hefur áhuga á að starfa fyrir okkur þá höfum við áhuga á að heyra frá þér og vita af þér. Ef þú ert leigutaki og telur að viðhaldi sé ábótavant þá vinsamlegast hafðu samband: |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||